Persónuverndarstefna
Síðast uppfært 27. október 2026
Beint er kerfi sem verslanir nota til að selja í beinni útsendingu. Hér kemur fram hvaða persónuupplýsingum er safnað þegar þú horfir á útsendingu, kaupir eða notar Beint sem verslun, til hvers þær eru notaðar, hverjir fá þær og hver réttindi þín eru. Stefnan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR).
1. Hver ber ábyrgð
- Þegar þú horfir eða kaupir er það verslunin sem heldur útsendinguna og selur vöruna sem ber ábyrgð á upplýsingunum þínum (ábyrgðaraðili). Beint vinnur þær fyrir hennar hönd (vinnsluaðili), samkvæmt vinnslusamningi í skilmálum Beint. Nafn verslunarinnar kemur fram á útsendingarsíðunni og í körfunni.
- Þegar þú notar Beint sem verslun (stjórnborð, innskráning) ber Matardagur slf ábyrgð á upplýsingunum.
Rekstraraðili Beint: Matardagur slf, kt. 4205251170, Birkiholt 2. Netfang: info@livestudios.is.
2. Hvaða upplýsingum er safnað
Áhorfendur
- Handahófskennt auðkenni sem vafrinn þinn býr til og geymir, svo þú haldir körfunni þinni. Það segir ekkert um hver þú ert.
- Nafnið sem þú gefur upp þegar þú skrifar í spjallið eða ýtir á „Kaupa“, og það sem þú skrifar í spjallið.
- Hvað þú keyptir eða skráðir þig á biðlista fyrir, og hvenær.
- Netfang, ef þú gefur það upp þegar þú kaupir (valfrjálst). Það er aðeins notað til að minna þig einu sinni á ef þú gleymir að greiða fyrir vörur sem eru fráteknar fyrir þig.
- IP-tala er notuð í stutta stund til að verjast misnotkun (t.d. sjálfvirkum kaupum). Hún er aðeins geymd í minni netþjónsins og ekki vistuð.
Áminningalisti
- Netfangið sem þú skráir til að fá áminningu þegar verslun fer í loftið, og hvort þú samþykktir líka tilboð og fréttir frá henni.
- Áminningar eru sendar á grundvelli samþykkis þíns. Tilboð og fréttir aðeins ef þú hakaðir sérstaklega við það. Afskráningartengill er í hverjum pósti.
Kaupendur
- Nafn, netfang, símanúmer (valfrjálst) og heimilisfang ef varan er send, ásamt afhendingarmáta.
- Vörur, verð og staða pöntunar.
- Ef greitt er á greiðslusíðu vefverslunarinnar (t.d. Shopify) sér vefverslunin um greiðsluna. Beint sér aldrei kortanúmer eða aðrar greiðsluupplýsingar.
Verslanir
- Nafn verslunar, nafn og netfang notanda og lykilorð, sem er aðeins geymt sem óafturkræft tætigildi (scrypt).
- Aðgangslyklar að vefverslun og streymislyklar (Facebook, Instagram), dulkóðaðir (AES-256).
- Vörur, útsendingar, pantanir og útlitsstillingar verslunarinnar.
Myndefni
Útsendingar eru sendar út í beinni. Beint geymir ekki upptökur af þeim. Ef verslunin sendir útsendinguna líka á Facebook eða Instagram gilda skilmálar Meta um það sem þar birtist.
3. Tilgangur og heimild
| Tilgangur | Heimild |
|---|---|
| Taka frá vöru, halda körfu, afgreiða og senda pöntun, senda staðfestingu í tölvupósti | Efndir samnings (6. gr. 1. mgr. b-liður GDPR) |
| Spjall í útsendingu og birting fornafns þegar þú kaupir („Sara keypti…“) | Lögmætir hagsmunir verslunarinnar af lifandi útsendingu; þú ræður nafninu sem þú gefur upp |
| Varnir gegn misnotkun, öryggi og öryggisafrit | Lögmætir hagsmunir |
| Bókhald verslunarinnar | Lagaskylda verslunarinnar (lög nr. 145/1994 um bókhald) |
| Aðgangur verslunar að Beint | Efndir samnings |
Upplýsingarnar eru ekki notaðar í auglýsingaskyni, ekki seldar og ekki notaðar til sjálfvirkrar ákvarðanatöku.
4. Hverjir fá upplýsingarnar
- Verslunin sem selur vöruna fær pöntunina þína. Í sameiginlegri útsendingu nokkurra verslana fær hver verslun aðeins pantanir á sínum vörum.
- Vefverslun verslunarinnar (t.d. Shopify eða WooCommerce) fær pöntunina svo hægt sé að afgreiða hana.
- Undirvinnsluaðilar Beint:
| Aðili | Hlutverk | Staðsetning |
|---|---|---|
| Render Services, Inc. | Hýsing netþjóns og gagnagrunns | ESB (Frankfurt) |
| LiveKit, Inc. | Flutningur myndar og hljóðs í beinni (ekki geymt) | ESB (Frankfurt) |
| Backblaze, Inc. | Dulkóðuð öryggisafrit | ESB (Amsterdam) |
| Resend, Inc. | Sending tölvupósts (pöntunarstaðfestingar) | Bandaríkin |
Þegar upplýsingar fara til Bandaríkjanna byggir það á gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU-U.S. Data Privacy Framework) eða stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB.
5. Hversu lengi upplýsingarnar eru geymdar
- Nöfn og spjall áhorfenda sem pöntuðu ekki, og körfur sem runnu út eða voru ógiltar, eru nafnhreinsaðar 6 mánuðum eftir útsendinguna.
- Skilaboð sem send eru kaupendum (körfuhlekkir og staðfestingar) eru geymd í 12 mánuði og svo eytt.
- Tæknilegar upplýsingar um villur (t.d. slóð, vafri og villuskilaboð) og tilkynningar verslana um vandamál eru geymdar í 90 daga, til að hægt sé að finna og laga villur.
- Netfang á áminningalista er geymt þar til þú afskráir þig; eftir afskráningu er því eytt innan 30 daga.
- Pantanir eru geymdar á meðan verslunin er í viðskiptum við Beint, svo hún geti afgreitt þær, sinnt skilum og fært bókhald. Verslunin getur eytt upplýsingum um einstaka viðskiptavini hvenær sem er.
- Þegar verslun hættir í viðskiptum er gögnum hennar eytt innan 90 daga, nema hún óski eftir afriti fyrst.
- Öryggisafrit eru yfirskrifuð í hring og eru horfin í síðasta lagi 31 dögum eftir að upplýsingum er eytt.
6. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
- fá aðgang að upplýsingunum um þig og afrit af þeim,
- fá rangar upplýsingar leiðréttar,
- fá upplýsingum eytt („réttur til að gleymast“), nema verslunin þurfi að geyma þær vegna laga, t.d. bókhalds,
- andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum, og fá vinnslu takmarkaða,
- fá upplýsingarnar afhentar á tölvutæku formi (flutningsréttur).
Hafðu samband við verslunina sem þú keyptir af. Hún getur flutt út eða eytt upplýsingum um þig beint úr Beint. Þú getur líka skrifað okkur á info@livestudios.is og við komum beiðninni áfram. Svar berst innan mánaðar. Ef þú ert ósátt(ur) getur þú kvartað til Persónuverndar.
7. Vafrakökur og geymsla í vafra
- Verslanir sem skrá sig inn fá eina nauðsynlega innskráningarköku.
- Áhorfendasíðan geymir auðkennið þitt og nafnið sem þú gafst upp í vafranum þínum, svo þú þurfir ekki að skrifa það aftur og haldir körfunni.
- Engar auglýsinga- eða greiningarkökur eru notaðar og engum upplýsingum er deilt með auglýsendum. Letur er afhent frá Beint en ekki Google.
Þar sem aðeins er notast við það sem nauðsynlegt er til að þjónustan virki þarf ekki að samþykkja vafrakökur sérstaklega.
8. Öryggi
Öll samskipti eru dulkóðuð (HTTPS). Lykilorð eru geymd sem tætigildi, aðgangslyklar eru dulkóðaðir, og afrit eru tekin á klukkutíma fresti og geymd dulkóðuð utan hýsingarinnar. Komi upp öryggisbrestur sem varðar persónuupplýsingar er viðkomandi verslunum tilkynnt um hann án tafar, og Persónuvernd innan 72 klukkustunda þar sem það á við.
9. Breytingar
Ef stefnunni er breytt birtist ný útgáfa hér með nýrri dagsetningu. Verslunum er tilkynnt um verulegar breytingar.