Skilmálar

Síðast uppfært 27. október 2026

Beint er rekið af Matardagur slf, kt. 4205251170, Birkiholt 2 („Beint“, „við“). Fyrsti hluti skilmálanna á við um þá sem kaupa í útsendingu, annar hluti um verslanir sem nota Beint og sá þriðji er vinnslusamningur um persónuupplýsingar.

Hluti A: Fyrir kaupendur

Hluti B: Fyrir verslanir

1. Þjónustan

Beint gerir verslunum kleift að selja í beinni útsendingu: áhorfendasíðu, kaup með einum smelli, frátekningar og biðlista, samstillingu við vefverslun, grafík og áframsendingu á aðra miðla. Við bætum þjónustuna stöðugt og getum breytt eiginleikum hennar, en látum vita fyrirfram um breytingar sem skerða hana verulega.

2. Aðgangur

Þú berð ábyrgð á að lykilorð og aðgangslyklar séu vel geymdir og á öllu sem gert er í gegnum aðgang verslunarinnar. Láttu okkur vita strax ef þig grunar að óviðkomandi hafi komist inn.

3. Ábyrgð verslunarinnar

4. Verð og greiðslur

Verð fyrir þjónustuna fer eftir samkomulagi eða verðskrá hverju sinni. Greiðslur kaupenda fara ekki um Beint heldur beint til verslunarinnar.

5. Gögnin þín

Verslunin á gögnin sín: vörur, pantanir og upplýsingar um viðskiptavini. Hún getur flutt þau út hvenær sem er. Þegar viðskiptum lýkur eyðum við þeim innan 90 daga, nema verslunin óski eftir afriti fyrst.

6. Uppitími og takmörkun ábyrgðar

Við leggjum okkur fram um að Beint sé alltaf aðgengilegt og tökum afrit af gögnum á klukkutíma fresti, en getum ekki tryggt að þjónustan verði aldrei fyrir truflunum, t.d. vegna bilana hjá hýsingaraðila, streymisþjónustu eða vefverslun. Beint ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem töpuðum hagnaði eða sölu. Bein ábyrgð Beint takmarkast við þjónustugjöld sem verslunin hefur greitt síðustu þrjá mánuði, nema um ásetning eða stórfellt gáleysi sé að ræða.

7. Uppsögn

Verslun getur hætt hvenær sem er. Við getum sagt upp þjónustu með 30 daga fyrirvara, eða strax ef skilmálar þessir eru brotnir alvarlega.

8. Lög og varnarþing

Um skilmálana gilda íslensk lög. Ágreiningsmál skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Hluti C: Vinnslusamningur

Þegar Beint vinnur persónuupplýsingar um áhorfendur og kaupendur verslunar er verslunin ábyrgðaraðili og Beint vinnsluaðili, sbr. 28. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar (GDPR). Þessi hluti er vinnslusamningur milli aðila.

  1. Efni og tilgangur. Vinnslan felst í rekstri útsendingarsíðu, spjalls, frátekninga, körfu og pantana, og flutningi pantana til vefverslunar verslunarinnar, eins og lýst er í persónuverndarstefnunni.
  2. Fyrirmæli. Beint vinnur upplýsingarnar aðeins samkvæmt fyrirmælum verslunarinnar, sem birtast í stillingum hennar og notkun á Beint, og ekki í eigin þágu.
  3. Trúnaður. Þeir sem hafa aðgang að upplýsingunum eru bundnir trúnaði.
  4. Öryggi. Beint viðhefur viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir: dulkóðun í flutningi, dulkóðaða aðgangslykla, aðgangsstýringu og regluleg afrit.
  5. Undirvinnsluaðilar. Verslunin heimilar notkun þeirra undirvinnsluaðila sem taldir eru upp í persónuverndarstefnunni. Verslunum er tilkynnt um nýja undirvinnsluaðila fyrirfram og þær geta andmælt.
  6. Réttindi hinna skráðu. Beint aðstoðar verslunina við að svara beiðnum um aðgang, leiðréttingu og eyðingu. Verslunin getur sjálf flutt út og eytt upplýsingum um viðskiptavin í stjórnborðinu.
  7. Öryggisbrestir. Beint tilkynnir verslun um öryggisbrest sem varðar upplýsingar hennar án ótilhlýðilegrar tafar.
  8. Lok vinnslu. Við lok samnings er upplýsingunum eytt innan 90 daga, eða þeim skilað ef verslunin óskar þess.
  9. Eftirlit. Beint lætur versluninni í té upplýsingar sem þarf til að sýna fram á að farið sé að þessum skyldum.

Hafa samband

Matardagur slf, Birkiholt 2. Netfang: info@livestudios.is.

Skilmálar – Beint